24.4.2007 | 11:43
Matseðillinn afskaplega girnilegur !!!
NOMA með sinn norðurlandamatseðil hefur slegið enn eitt metið með því að bjóða uppá gratineraða hrútspunga með sviðapaté borið fram í hálfu höfði af kind... Þessum glæsilega rétti er rennt niður með Brennivíni sem er vinsælasti drykkurinn á Pravda heitasta skemmtistað Íslendinga.
Starfsmenn dekkjarframleiðandans Michelin sögðu að staðurinn væri bara hreint ágætur í nýjasta fréttabréfinu sínu "Negldur á veturna".
Noma talið 15. besta veitingahús heims | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Michelin veitingastaðastjörnurnar eru reyndar almennt taldar virtasta einkunnagjöf á þessu sviði í heimi. Michelin gáfu upprunalega út kort og ferðaleiðbeiningar fyrir bifreiðaeigendur. Þar voru veitingastöðum út um allt veganet Evrópu gefnar einkunnir. Svo þróaðist þetta smátt og smátt yfir í svona restaurant-guide. Á michelin stjörnustöðum með 3 stjörnur verður stundum að panta með hálfsárs eða árs fyrirvara og upphæðirnar sem maður borgar fyrir kvöldstund eru ekkert klink.
:)
Daði Ólafsson (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 11:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.