Lögreglan á Íslandi... Hvað er að gerast ?

Ég skora á alla að horfa á þetta myndband !!!
http://www.youtube.com/watch?v=s94LWNcz2zc

Almennt er ég mjög jákvæður fyrir lögreglumönnum og störfum þeirra. Hvernig gæti ég verið annað þar sem ég bý í þjóðfélagi þar sem ég stóla á lög og reglu. Í trukkabílstjóramótmælunum lét ég sterk orð falla um framgöngu lögreglunnar og ég er samt ekki að dæma þá í heild sinni í öllum þeirra störfum heldur því verkefni og þeim mistökum sem þeirra viðbrögð voru.

Núna rek ég mig aftur á mistök lögreglunnar og í þetta skipti eru þau stór. Í myndbandinu sem ég vísa í er lögreglumaðurinn ekki bara fyrri til að leggja til atlögu heldur með stórhættulegum hætti þar sem hann ræðst að hálsi ungs drengs. Þetta er til háborinnar skammar fyrir alla lögreglustéttina og ég þekki menn sem starfa þar og eru heiðarlegir og góðir borgarar út í hið ítrasta.

Mér er sama hvaða afsakanir ég heyri um hvað þessir drengir voru búnir að brjóta af sér áður eða ögra lögreglumönnunum þetta kvöldið. Sama hvað menn gera að þá eiga lögreglumenn ekki undir neinum kringumstæðum að geta hegðað sér svona að ástæðulausu. Þetta er augljóslega ekki sjálfsvörn hjá þeim.

Ég skora á stjórnvöld að víkja þessum manni tafarlaust úr starfi og jafnvel öðrum lögreglumönnum sem voru þarna og gerðu ekkert til að hindra hann. Jafnframt legg ég til að hann falli ekki undir verndarvæng lögreglunnar í þessu tilviki heldur sé hann dæmdur og það alvarlegar heldur en almennur borgari þar sem hann nýtir sér valdið til að misbeita rétti þessa drengs.

Ef yfirvöld geta tekið á þessu máli af fullum þunga mun ég jafnvel öðlast virðingu fyrir þeim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband