Ég er ekki asni !!!

Mér fannst það alveg rosalega töff að reykja þegar ég var unglingur. Reyndar fannst mér það líka rosalega töff þangað til ég var orðinn tvítugur. Svo allt í einu ákvað ég að hætta !

Af hverju ????

Því ég var að breytast í þetta ! 

 Ég reykti eins og ég ætti lífið að leysa og á milli sígaretta fékk ég mér skyndibita. Maginn tútnaði út og ég var við að líta svona út !!!

 

Svo ákvað ég að breyta um lífsstíl. Ég fór að uppgötva að hvítar tennur eru bara miklu flottari. Þessvegna segi ég nei við sígarettum og nammi. Svo vita allir að snickersið sest bara beint á rassapúðana.

 

Ég er byrjaður að borða grænmeti, salöt, ávexti og hollari mat almennt. Nýr og breyttur lífsstíll og eftir aðeins 11 daga lít ég svona út !!!

Nei kanski ekki alveg... En ég er að minnsta kosti ekki asni lengur !!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn, ég sé að þú stendur þig ennþá.

Til hamingju með það og gangi þér vel áfram. Þetta er bara ekkert mál !!!!!!!!

Kveðjur frá Grindavík.

Stefanía Björg Einarsdóttir (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 07:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband